Mitt svokallaða líf

Jæja, við höfum lokið við að horfa á My So-Called Life. Við byrjuðum líklega í lok maí eða byrjun júní. Í allt eru þetta bara 17 þættir en við vorum líka að fara í gegnum Friends á sama tíma.

Díllinn var að Eygló horfði á Godfather í staðinn. Það tók mun fyrr af.

Þetta voru alveg ágætir þættir en stundum alveg kvöl og pína að horfa á. Unglingavandamál eru erfið áhorfs.