Það borgar sig….

Forsíðufrétt Fréttablaðsins um að það borgaði sig að taka fíkniefnaneytendur í meðferð kom mér ekki á óvart. Mig grunar nefnilega að það eigi við fjölmargt í velferðarkerfinu að langsamlega ódýrasta lausnin sé að taka á vandanum sem allra fyrst og reyna að gera það vel.

Ég vil annars endurtaka það sem ég hef áður sagt að það er nauðsynlegt að dæma fíkniefnaneytendur sem brjóta af sér í meðferð og/eða skylda þá til að mæta í eftirlit þegar þeir losna.