Nýja guðlastsauglýsing Símans

Ég verð að játa að ég fatta ekki alveg hvað á að vera fyndið í henni. Ég er alveg hlynntur því að gera grín að kaþólsku kirkjunni en þarna er bara ekkert gert með efnið. Það er eins og að það hafi komið hugmynd um að nota þetta í auglýsingu en síðan hafi enginn náð að útfæra þetta almennilega.

En nú þegar Kaþólikkar mótmæla þessu þá get ég allavega hlegið að einhverju eða einhverjum.