Jeppajátning

Þar sem ég var að keyra heim í gær í Strætó fór ég að hugsa um það hvernig þessir Range Rover jeppar litu út. Ég horfði á jeppana í kring og hugsaði “þetta gæti verið Range Rover” en aldrei passaði það þegar ég sá nöfnin. Þetta er þrátt fyrir það að ég hafi í síðustu viku skoðað síðuna sem Palli vísaði á með öllum myndunum af þessum jeppum. Ég virðist semsagt vera algjörlega ófær um að þekkja Range Rover frá öðrum jeppum. Heilinn minn neitar bara að sýna lit og hafa áhuga á þessu. Ég get ekki áfellst hann.