Febrúar

Það kemur mér ekki á óvart að mótmælin séu að verða kraftminni. Fólk hefur ekki áhuga á að láta desember fara í pirring og reiði. Ég spáði og spái enn að í febrúar gerist eitthvað stærra en hingað til. Allavega myndi ég telja það slæma hugmynd hjá ríkisstjórninni að gera ráð fyrir að það mesta sé afstaðið. Í febrúar verður fólk atvinnulaust og að fara að missa húsnæðið. Ef ekki verður komið til móts við fólkið á einhvern hátt mun það rísa upp.