Eitruð gleraugu

Í gær nagaði ég gleraugun mín og fann skyndilega sterkt bragð upp í mér. Smá umhugsun varð til fatts. Ég var að finna bragðið af piparúðanum. Ég hafði vissulega hreinsað glerið en ég hafði greinilega ekki hreinsað umgjörðina sjálfa almennilega.