Glatað tækifæri Baggalúts

Mér þótti þessi frétt Baggalúts sem birtist í tilefni þess að Gunnar Birgisson var látinn flakka nokkuð fyndin. Um leið finnst mér að þarna hafi Baggallútsmenn misst af glæsilegu tækifæri. Ef maður er yfirhöfuð að líkja Katrínu við Leiu prinsessu þá liggur í augum uppi hver andstæðingurinn hefði átt að vera. Baggalútur missti semsagt af tækifæri til að setja mynd af Leiu í gullbikiníi að kyrkja Jabba the Hutt. Bömmer.