Diskur sendur

Samkvæmt pósti frá Napalm Records þá var í dag verið að senda mér eintak af By the Light of the Northern Star sem Týr er að gefa út. Formlegur útgáfudagur er í lok mánaðarins en það er betra að panta beint frá plötufyrirtækinu til að fá diskinn sem fyrst.

Ég hef þegar heyrt þrjú lög af disknum. Tvö heyrðum við Eygló reyndar á demóstiginu þegar við skutluðum Heri til Akureyrar í október. Ég er farinn að hlakka til að heyra restina.