Víti til varnaðar

Ég taldi að ein helsta hættan sem fylgdi áframhaldandi stjórnarsetu Sjálfstæðisflokksins væri sú að frjálshyggjuvæðingin héldi áfram en nú með þeim rökstuðningi að kreppan gerði hana nauðsynlega. Að einhverju leyti þykir mér þetta HS-Orku mál sýna að ótti minn hafi verið réttlætanlegur. Sjálfstæðismenn í Reykjavík og Reykjanesbæ eru einmitt að reyna að halda áfram á þessum brautum. Ég er allavega feginn að við höfum VG í ríkisstjórn þó þar fylgi gervijafnaðarmannafrjálshyggjugimp eins og Árni Páll með.