Málsvarar litla mannsins?

Ég lét vera að lesa hvað álitsgjafar Fréttablaðsins höfðu að segja um skattahækkanir. Mér fannst nóg að sjá hverjir þeir voru: Bjarni Ben, Sigmundur Davíð og Vilhjálmur Egilsson. Semsagt ríkir kallar. Væntanlega hefur þótt auðveldara að tala bara við Villa í stað þess að fá Gylfa Arnbjörnsson til að endurtaka skoðanir hans.

Mér sýnist að mestu að skattahækkanirnar séu rökréttar. Ég veit samt ekki alveg með að bæta enn meiru við á sykurvörurnar sem voru hækkaðar nú fyrir skemmstu. Djúsið mitt hækkar væntanlega endalaust í verði.