N4 og framtíð sjónvarps

Eygló mín horfir reglulega á N4. Ólíkt mér sem þó bjó í 22 ár á Akureyri. Hún bjó þar bara í tvö ár.

Þeir sem hafa ekki horft vita væntanlega ekki að þættir eru endurteknir aftur og aftur. Og væntanlega aftur.

Ég skil ekki hvers vegna sjónvarp er svona (ennþá) í dag. Af hverju eru þessir þættir ekki bara aðgengilegar í gegnum myndlyklakerfi Voðafóns eða Símans? Hvers vegna er fólk að láta sjónvarpsstöðvar skipuleggja dagskránna fyrir sig þegar það gæti skipulagt hana sjálf?

Kúkurinn í lauginni

Um daginn kom upp frétt um kúk í heita pottinum í Árbæjarlaug. Þar kom fram að potturinn hefði ekki verið tæmdur. Í athugasemdum við fréttina var hæðst að fólki fyrir að finnast þetta ógeðslegt og bent á að klórinn dræpi alla sýkla eins og skot.

Sjálfur á ég erfiðast með að skilja hvers vegna fólki er gert að þvo sér með sápu áður en það fer í sund ef það má síðan kúka í vatnið án þess að skipt sé um það. Mér þykir það eitthvað órökrétt. Ég tek fram að ég styð bæði þvott fyrir sund og einnig að skipt sé um vatn í kúkpottum.

Þróun þungarokks

Ég var að horfa á alveg ágæta heimildaþáttaseríu sem heitir Metal Evolution. Þar er á ferðinni kanadískur mannfræðingur sem fjallar um þróun þungarokks. Þetta eru ellefu þættir sem eru flestir þannig settir upp að þeir fjalla um eina undirdeild þungarokksins. Alveg hreint ágætt að flestu leyti. Reyndar ótrúlega hallærislegt að blörra endalaust rassa og brjóst.

Það er kannski fyrirsjáanlegt að ég ergi mig á þessu en mér þótti vanta umfjöllun um Queen þarna. Þeir sáust vissulega á þróunarkortinu en voru bara held ég nefndir einu sinni.

Nú hvá örugglega margir og skilja ekki af hverju Queen ætti heima í þáttum um þungarokk. Því fólki er bent á að hlusta á Stone Cold Crazy.

Það er ekkert skrýtið að Metallica hafi á sínum tíma tekið þetta lag. Þó ekkert annað kæmi til þá væri Stone Cold Crazy nægileg ástæða til þess að nefna Queen. Allavega í Thrash metal þættinum. Áhrifin eru þó miklu meiri á Prog metal eins og Ogre Battle sýnir kannski. Hins vegar fékk Rush gríðarlegt pláss þegar fjallað var um Prog metal (nefndi ég að höfundurinn er kanadískur).

En þó Queen hafi verið með þungarokk á nær öllum plötum sínum var tónlistin of fjölbreytt til þess að hægt væri að setja hana í nokkurn flokk.

Mér fannst líka vanta umfjöllun um Uriah Heep. Það var dáltið áberandi þegar var verið að tala um að Rainbow hafi verið frumkvöðlar í notkun á miðaldafantasíu í textasmíðum innan þungarokks. Áður en Rainbow fór af stað hafði Uriah Heep m.a. gefið út plöturnar Demons and Wizards og The Magician’s Birthday. Þið getið alveg giskað um hvað (margir) textarnir fjölluðu. Eða giskið ekki, hér er Demons and Wizards:

Undirskriftarlistar

Ástæðan fyrir því að ég tók ekki nærri mér að Ástþór hafi verið dæmdur úr keppni kemur því engu við hvað mér finnst um pólitík hans heldur eingöngu hvað mér þótti um að hann væri að verðlauna þá sem söfnuðu undirskriftunum. Mér þótti það einfaldlega óeðlilegt og mér fannst það fyrirfram bjóða upp á vitleysu sem rættist einmitt.

En það má endilega fara að skoða hvernig svona undirskriftarsafnanir fara fram. Það hlýtur að vera tímabært að gera þetta (líka) rafrænt. Hvort sem það sé í gegnum heimabanka eða í gegnum skattveflykilinn. Ég get ekki ímyndað mér að það sé óyfirstíganlega flókið og það ætti að vera erfiðara að svindla þannig. Um leið mætti reyndar hækka þröskuldinn til að bjóða fram, allavega í forsetakosningunum.