Fyrir um tuttugu árum síðan áskotnaðist mér ómerkt íslensk plata. Hún er í hvítu hulstri og með hvítum miðum. Ég veit ekki hvað þetta kallast á íslensku en á ensku heitir þetta „white label“.
Nýlega tengdi ég plötuspilara fyrir son minn og ákvað að nýta tækifærið til að rannsaka plötuna. Ég tók upp báðar hliðarnar og hlustaði á í tölvunni (betra þegar ég er að hoppa fram og til baka). Það gengur ekkert að finna upplýsingar um plötuna á vefnum. Það gæti bara verið vegna þess að Google er ónýtt og DuckDuckGo er lélegra með íslenskt efni.
Ég er með þrjá lagatitla á hreinu. Texti eins lagsins er kvæðið Bjór eftir Káinn. Það hefði átt að auðvelda mér leitina töluvert en ég fann ekkert á Leitir eða Hljóðsafni. Eina upptakan virðist vera með Baggalúti.
Til þess að finna frekari upplýsingar set ég hérna stuttar klippur af lögunum. Þar sem hliðarnar eru ómerktar kalla ég þær bara „X“ og „Y“.
|
X1. Ástarljóð |
Y1. Ég veit þú kemur. |
|
X2. Bjór |
Y2. Íslensk útgáfa af The Weight. |
|
X3. „Partíljón“ (gisktitill) |
Y3. „Er ég lít á fjöllin og byggðina…“ |
|
X4. „Freki pabbi“ (gisktitill) |
Y4. „Þegar komið er að kvöldi…“ |
Veist þú svarið?
Viðbót. Jósi vissi svarið. Þetta er hljómsveitin Sjöund og ég fann plötuna Gott í bland inn á Leitir. Ég fann hana ekki fyrr vegna þess að ég leitaði að nöfnum Robbie Robertson (sem samdi The Weight) og Káinn en hvorugur er skráður með höfundaaðild þar. Ég leitaði líka að laginu Bjór en það er kallað Bjóróður á plötunni. Platan finnst ekki á Hljóðsafni.
- Pípan
- Bjóróður
- Partýljón
- Frikki pabbi
- Ég veit þú kemur
- Ikki fara frá mær
- Komdu til baka
- Allt sem ég geri
