Three Kings (1999) ★★★★⯪

Fjórir hermenn finna fjársjóðskort en gullið var í raun að finna í hjarta þeirra.

Three Kings er frægust fyrir átök leikstjórans David O. Russell og George Clooney. Reyndar eru margar myndir David O. Russell frægar vegna þess að hann var að hegða sér eins og fífl. Það er til upptaka af honum að ausa úr skálum reiði sinnar yfir Lily Tomlin sem hefði eiginlega átt að ljúka ferli hans. Hvað um það.

Three Kings er merkilega gagnrýnin mynd um Persaflóastríð (1990-1991). Hún laumar inn upplýsingum sem fólk almennt og Bandaríkjamenn sérstaklega hafa ekki endilega verið meðvitaðir um. Varðandi fortíðina er talað um stuðning Bandaríkjanna við Saddam Hussein í stríði Írak og Íran (1980-1988).

Í Three Kings er líka lögð mikil áhersla á hvernig þáverandi forseti George H.W. Bush gaf í skyn að hann myndi hjálpa Írökum (og Kúrdum) í uppreisn gegn Saddam Hussein en lyfti síðan ekki fingri þeim til aðstoðar (sagan rímar enn í dag). Auðvitað var gagnrýni á þennan hluta arfleifðar Bush eldri stór ástæða þess að sá yngri réðst inn í Írak árið 2003 sem með keðjuverkun leiddi m.a. til blóðugs borgarastríðs í Sýrlandi.

Three Kings hefst eftir uppgjöf Saddam Hussein í mars 1991. Bandarískir hermenn eru þá fyrst og fremst í því hlutverki að afvopna íraska hermenn. Fjórir þeirra uppgötva leyndarmál og leggja af stað í háskaför án leyfis yfirmanna sinna.

Eitt helsta undirliggjandi þema Three Kings er að Persóaflóastríðið hafi verið fjölmiðlastríð. Það er sýnt hvernig bandarískum blaðamönnum var stýrt þannig að þeir sæu einungis það sem herinn vildu sýna þeim. Á þeim tímapunkti sem myndin gerist var ekki búið að afhjúpa lygar áróðursherferðar um framferði íraskra hermanna á fæðingardeild í Kúveit en myndin er án efa undir áhrifum frá þeirri sögu.

Nora Dunn leikur mest áberandi blaðamann myndarinnar og mér fannst sláandi hve mikið hún minnti mig á Christiane Amanpour frá CNN. Ég get ekki ímyndað mér annað en að það hafi verið viljandi og ég er ekki viss um hvort það hafi verið góð ákvörðun.

Eitt það áhugaverðasta við leikaraliðið í Three Kings er að í nokkuð áberandi hlutverki ungrar íraskrar stúlku er Alia Shawkat (Arrested Developement, Search Party o.s. frv.). Hún var þá níu ára gömul en um leið og andlit hennar sést skýrt er hún auðþekkjanleg. Hún er líka ein af fáum leikurum myndarinnar sem á ættir að rekja til Írak því pabbi hennar fæddist í Bagdað.

Í aðalhlutverkum Three Kings eru fyrrnefndur George Clooney, Ice Cube (ísmoli í eyðimörk), Mark Wahlberg og Spike Jonze (sem sló í gegn sem leikstjóri sama ár með Being John Malkovich – 1999 var gott kvikmyndaár). Allir mjög góðir, meira að segja Wahlberg sem er á sínu gullna svæði í hlutverki hermanns sem er frekar vitlaus og oft andstyggilegur.

Meðal annarra leikara eru Mykelti Williamson (sem var of sannfærandi í Forrest Gump til þess að ég tengi nafnið við andlitið), Holt McCallany (Manhunter), Saïd Taghmaoui (La Haine), Cliff Curtis (Once Were Warriors), Jamie Kennedy (sem allra vitlausasti hermaðurinn), Judy Greer og Jim Gaffigan (sem ég þekkti strax en fannst samt svo ólíkt miðað við aldur og seinni störf).

Three Kings lítur frábærlega út. David O. Russell heimtaði að nota sérstaklega vandasama filmuvinnslu sem gefur myndinni ákveðna tóna sem virka annarsheimslegir og svörtu litirnir eru mjög dökkir. Kvikmyndatakan er líka mjög góð. Hún nær að brúa bilið milli þess að sýna hve ringlandi aðstæðurnar eru í bardögum án þess að þó að ég gæfist bara upp á að reyna að fylgjast með framvindunni.

Ég hefði líklega átt að vera búinn að sjá Three Kings fyrir löngu síðan. Hún er frábær og ef boðskapurinn hefði verið meðtekinn af Bandaríkjamönnum væri örugglega margt betra í heiminum í dag. Ég ætla ekki að segja að greining myndarinnar á stríðinu sé fullkomin en hún er betri en ég ætlast almennt af bandarískum myndum. Hún er að mörgu leyti í ætt við þær myndir sem hafa verið gerðar um Víetnamstríðið.

Maltin gefur ★★★☆.

Óli gefur ★★★★⯪.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *