Grumpy Cat’s Worst Christmas Ever (2014) ★★★⯪☆👍

Krumpaður köttur lendir í æsispennandi jólaævintýrum.

Hver man ekki eftir Grumpy Cat? Sætur dvergvaxinn köttur sem varð stjarna á internetinu fyrir að líta út fyrir að vera í fýlu.

Aubrey Plaza er í hlutverki Grumpy Cat. Megan Charpentier leikur tólf ára stelpu sem á erfitt. Daniel Roebuck sem var rekinn úr hlutverki sínu í fyrstu Home Alone¹ leikur öryggisvörð.

Ég rakst á dóm um Grumpy Cat’s Worst Christmas Ever þar sem áhorfandi var miður sín yfir því að myndin væri ekki djúp og beitt ádeila. Sjálfur bjóst ég við að þetta væri ógeðslega heimskuleg mynd og það stóðst. Mér þótti hún líka oft fyndin.

Ef toppurinn á skalanum væri besta mögulega Grumpy Cat jólamyndin sem sjónvarpsstöðin Lifetime gæti mögulega framleitt þá gæfi ég líklega fimm stjörnur.

Óli gefur ★★★⯪☆👍.

¹ Nefni það bara af því það hefur verið í umræðunni. Hann er fínn leikari sem ég man fyrst eftir í The Fugitive.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *