Yngri með skeggið

Sverrir rakaði sig og segist hafa yngst við það. Ég ætla ekki að raka mig og ég hef ekki rakað mig alveg í nærri tvö ár. Ólíkt Sverri þá gerir skeggið mig ekki ellilegan heldur gefur mér svona ungæðingslegan sjarma, ég þarf á þessum sjarma að halda til að vega upp á móti gráa hárinu. Ég leit út fyrir að vera svona þrítugur þegar ég var skegglaus.

Í tengdum fréttum þá kom í ljós að ég væri í raun 31 árs samkvæmt þessu netprófi sem allir hafa verið í undanfarið, Eygló var hins vegar 27 ára. Aldursmunur okkar hélst þarna. Ég hef litlar áhyggjur af því þó netpróf gefi mér fimm auka ár, ef skeggið væri vegið inn í þetta þá væri ég svona 24.

Til að koma aftur að fyrrnefndum Sverri þá tók hann þessa fallegu mynd sem prýðir síðuna mína þessa daga, ég vildi nota hana í kosningabaráttunni. Ég held að hann hafi annars tekið allar myndirnar á veggspjaldið en til þess notaði hann myndavélina hennar Eyglóar. Bara smá infó úr innherjabúðunum.