Séra Carlos Ferrer er lygari

Fyrir nokkru síðan ákvað séra Carlos Ferrer að ásaka Bigga vin minn um að „ljúga óheft“ á Vantrú. Hann hefur ítrekað verið beðinn um dæmi um þessar meintu lygar en hefur ekki gert slíkt. Ég get því ekki séð annað en að Carlos sé ekkert annað en aumur lygari, hann lýgur því að Biggi ljúgi. Það er algerlega ósatt að Biggi ljúgi á Vantrú, ég veit að hann vandar sig við að segja satt frá og tekur því ljúfmannlega þegar hann er leiðréttur.