Hættur að tala við mig, trúfrelsi og rafmagnsvandræði Ásgeirs

Carlos Ferrer er hættur að tala við mig, hann sendir mér ítrekað póst um það. Það er voða sorglegt þegar menn geta ekki staðið á bak við orð sín en svoltið fyndið í þessu tilfelli.

Ég fór á trúfrelsisþing VG áðan, það var ágætt. Stefni á greinarskrif um málið þegar Vantrúin hrekkur í lag.

Ég sótti síðan Eygló í vinnuna (of seinn vegna þess að þingið stóð of lengi) og fór síðan til Ásgeirs. Ásgeir átti í vandræðum með dimmer og satt best að segja þá var sá mjög undarlegur. Dimmerinn var tengdur við rofa og er í raun bara með tvær stillingar en ekki svona ljóssvið einsog hann ætti að vera með. Einhver gáfulingur hafði líka múrað raflagnaefnið inn í vegginn. Að lokum kom í ljós að vandamálið með dimmerinn var líklega að Ásgeir hafði látið 40 w peru í þegar dimmerinn þarf að lágmarki 60 w. Voðalega er Ásgeir heppinn að eiga svona góðan vin.