Við fórum á Hitchhiker núna í kvöld og ég er ekki glaður maður. Fáránlegar og óþarfar breytingar á bókinni, lélegt leikaraval og handrit sem sleppti fyndnustu línunum. Ég er nojaður.
Annars þá var Heiðar í bíóinu sem rifjaði upp fyrir mér að fyrir nærri níu árum vorum við á hugleikjamóti á Sauðárkróki og þar var verið að horfa á Hitchhiker þættina sem voru teknir upp af gervihnattastöð. Svarthvítt og snjókoma.

Nú er ég nokkuð viss um að 90% af breytingunum hafi Douglas sjálfur skrifað inn í kvikmyndahandritið áður en hann dó. Það var aldrei hugmyndin að þetta yrði algerlega eftir bókaútgáfunni, sjónvarpsútgáfunni eða útvarpsútgáfunni heldur að þetta yrði nýtt og sjálfstætt verk með bröndurum og hugmyndum sem Douglas óskaði sér að hefðu verið á sínum tíma.
Skrítið. Við sáum hana einmitt í gærkveldi líka, og þótti stórfín. Og leikaravalið var allt frá því að sleppa fyrir horn (Zooey Deschanel sem Trillian) yfir í hreina opinberun (Sam Rockwell ER Zaphod Beeblebrox).
Sá nokkra af BBC-sjónvarpsþáttunum einu sinni og fannst þeir hreint út sagt ömurlegir.
En bæði útvarpsþættirnir og bækurnar voru vitaskuld yndisleg skemmtan.
Zaphod missir kúlið þó nokkrum sinnum í bókunum! Mér finnst líka sá sem leikur Arthur Dent passa mjög vel inn í það hlutverk. Myndin í heild var mjög góð og allar breytingar þess eðlis að laga söguna að kvikmyndaforminu. Eitt var ég þó ósáttur við og það var Marvin. Hann var alltof krúttlegur, sléttur og Disneylegur til að virka fyrir mig. Hefði viljað sjá hann meira ógnvekjandi og ljótari.
Veit ég það. Ég sé hins vegar ekki fyrir mér að Adams hafi „heimskað“ handritið einsog gert var. Og ekki valdi hann þessa leikara. Marvin virkaði.
Ég er ósammála þér með Rockwell, á köflum var hann góður en öskraði síðan allt of mikið. Zaphod er þannig að hann myndi aldrei missa kúlið svona.