Að verja Egil

Mikið hefur verið gert úr því að Moggabloggarar skuli meira og minna styðja Egil Helgason í deilu hans við 365. En er þetta skrýtið? Þessir Moggabloggarar eru sumir sjálfir í hinum útvalda hópi álitsgjafa hjá Agli. Mig grunar síðan að hinir Moggabloggararnir sem verja hann séu margir wannabe álitsgjafar sem vilja endilega komast í símaskránna hjá Agli. Sjálfur er ég í símaskránni hjá Agli en á ekki í hættu að lenda í góðu bókinni hjá honum enda heiti ég asnalegu nafni.

Frá mínum sjónarhóli þá er málið frekar einfalt: ríkur maður sveik samning, líklega af því að hann vildi meiri peninga. Reyndar er Egill svo hégómgjarn að hann gæti jafnvel tekið lægri launagreiðslu gegn því að fá að hafa þennan bókaþátt, sem enginn mun nenna að horfa á, á RÚV. Varðandi þann þátt þá grunar mig að það sé ákveðinn misskilningur á ferð. Margir bókmenntafræðingar eru tilgerðarlegir og Egill Helgason er það líka en það þýðir ekki að hann hafi sjálfkrafa vit á bókmenntum.

8 thoughts on “Að verja Egil”

  1. Margir bókmenntafræðingar eru tilgerðarlegir og Egill Helgason er það líka en það þýðir ekki að hann hafi sjálfkrafa vit á bókmenntum.

    Egill Helgason er ekki bókmenntafræðingur.

  2. Arngrímur, ég veit, það er punkturinn. Egill Helgason er tilgerðarlegur eins og margir bókmenntafræðingar en það þýðir ekki að hann hafi vit á bókmenntum.

  3. Egill var á kafi í bókmenntunum áður en hann fékk áhuga á pólitíkinni og hann hefur skrifað eina verðlaunasmásögu. Í MR varð hann frægur fyrir þýðingu á broti úr The Wasteland eftir T.S. Eliot. Hann er vel inni í bókmenntum.

Lokað er á athugasemdir.