Dagurinn og vegurinn

Spurning dagsins: Er Arngrímur við það að fá kvíðakast?

Svar dagsins: Já.

Stjörnuspá dagsins: Nýleg athugun mun leiða sannleikann í ljós svo niðurstöður rannsóknar þinnar virka mun eðlilegri fyrir vikið. Ef þú heldur áfram á sömu braut munu niðurstöðurnar skýrast og hárlosið mun hætta. Einnig munt þú geta sofið á næturna og tekið lífinu rólegar. Lífið snýst ekki um vonir og væntingar Margrétar Haraldsdóttur.

Altént vildi ég að þetta hefði staðið í stjörnuspánni minni.

Talandi um rannsóknina mína, allir sem vilja og geta mega taka þátt í henni, þ.e. allir sem vita ekki um hvað hún snýst. Þeir sem vilja, geta og ekkert vita, mega bóka sig hér á athugasemdunum.

Stressið

Gamla góða. Stressið kemur og fer með peningavandræðum og hækkandi verkefnabunka. Ég þarf litlar áhyggjur að hafa af verkefnunum í lok næstu viku en peningar verða vandamál fram í júní. Í morgun vaknaði ég stressaður. Það veit ekki á gott.

—————————

Bobby Fischer verður sleppt og hleypt til Íslands. Eftir allt fjölmiðlafárið finnst mér það ekkert merkilegt. Ég held að flestir hafi fengið sig fullsadda af fregnum af Bobby Fischer.