Núna er ég að öllum líkindum að taka seinustu vaktina mína hérna á flugstöðina. Það þýðir að bara dagurinn í dag og morgundagurinn eru eftir. Það gætu verið aukavaktir eftir en það mun koma betur í ljós á morgun held ég.

Ég var að vinna alla helgina, bæði hér og í Smáralind. Mamma var með brjálað partý á fös. sem ég varð óvart hluti af þegar ég kom úr vinnunni. Það var nú samt bara gaman.
Elsa fær svo verðlaun fyrir óvenjulegasta þynnkumat sem ég hef séð. Það var normabrauð með lifrapylsu….
Geri aðrir betur.
Þarf líka bara monta mig hvað ég á sæta og g(óða) systur. Sjáið þið bara:
Þú ert best
Kútsíkútsíkúú, hvað hún er sæt!!
humm… versti þynnkumatur sem ég hef smakkað er jarðaberja nupo-létt útí vatn. Ekki það að ég hafi verið í megrun, ónei. Þetta var bara í alvöru það eina sem var til að borða… bara ef þið vissuð það ekki, þá er jarðaberja nupo-létt ÓGEÐ!