Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Miðvikudagur, 31. desember 2003 klukkan 23:29

Og skaupið var vissulega rusl

Skaupið var rusl en þið vissuð það fyrir. Það ætti náttúrulega bara að grafa Ladda, hann er svo leiðinlegur og ég finn það á mér að hann hafi sjálfur spunnið atriðið þar sem hann hleypur á vegg. Þeir sem tóku þátt í semja þetta kjaftæði ættu bara að stökkva ofan af kletti eða allavega láta skapandi störf vera.

Miðvikudagur, 31. desember 2003 klukkan 23:21

Castro og Stalín

Sögðu þau í alvörunni að Stalín hefði komið Castro til valda á Kúbu? Okkur heyrðist það. Reiknum, Stalín dó 1953, Castro kemst til valda 1959. Stalín var semsagt búinn að vera dauður 6 ár þegar hann kom Castro til valda. Ekki snjallt fólk þarna á ferðinni.

Þriðjudagur, 30. desember 2003 klukkan 1:31

Skemmtilegra en mig minnti

Við spiluðum Matador áðan, það var skemmtilegra en mig minnti. Það tók mig ekki langan tíma að ná ákveðnu forskoti og að lokum gáfust mótspilarar mínir upp enda hefðu þeir bara þurft að lenda svona einu sinni á einhverri eign minni til að fara á hausinn, tveir voru reyndar þegar farnir á hausinn.

Mánudagur, 29. desember 2003 klukkan 17:30

I rather be a jerk, than being hip like you

Úr laginu Jerk með Freak Kitchen:

I rather be a jerk, than being hip like you
I rather be a jerk, than do the shit you do
I rather be a jerk, than snort ?til I turn blue
I rather be a jerk, I rather be a jerk

Sunnudagur, 28. desember 2003 klukkan 23:53

Engin ástæða til efast?

Á aðfangadag sagði Fréttablaðið þjóðinni að það væri engin ástæða til að efast,ég er ekki á sömu skoðun og ég held að ég nái að vekja efa í grein á Vantrú.

Sunnudagur, 28. desember 2003 klukkan 18:10

Kjánalegt?

Vinur minn fór til Japans og sá að þar var algengt að fólk gengi með kross á sér þó að það væri alls ekki kristið, það er víst í tísku, gefur fólki vestrænt yfirbragð. Svoltið kjánalegt. Mér var hins vegar að detta í hug að Íslendingar eru nákvæmlega eins, ég veit um fólk sem hefur Búddastyttur heima hjá sér án þess að sjá að það tengi það nokkuð við Búddisma. Alls staðar er fólk kjánalegt.

Laugardagur, 27. desember 2003 klukkan 23:37

Óhelga nótt

Áðan neyddist ég til að horfa á Gísla Martein, hann er svo afskaplega vondur í því að taka viðtal, hvers vegna er hann í þessu starfi. Hann er náttúrulegur artaki Hemma Gunn og ef einhver heldur að ég meini það sem hrós þá hefur sá hinn sami ekki mikið vit í kollinum.

En eitt gladdi hjarta mitt. Ég veit ekki hvers vegna ég hef ekki pælt í þessu áður, greinilega eitthvað að hjá mér, en þegar fólk er að Ó, helga nótt þá er það í raun að syngja óhelga nótt.

Laugardagur, 27. desember 2003 klukkan 19:01

Tolkien og bækur almennt

Ekkert spennandi gerist hjá mér, horfði reyndar á Two Towers í lengdri mynd í dag og það voru nokkur atriði þar sem mér fannst bæta ýmsu við. Gaman gaman, síðan er það bara að horfa á aukaefnið.

Ég er búinn að klára Tolkien og Hringinn, það vakti hjá mér löngun að kafa dýpra í þennan nördaskap en ég hef áður gert. Ég er núna að lesa LotR aftur, ég hef reyndar ekki lesið hana afskaplega oft einsog sumir, þetta er bara í þriðja eða fjórða skiptið.

Ég er að lesa hina jólabókina með, Þjóðerni í þúsund ár?, eina og eina grein í senn. Ég hafði bara lesið eina grein úr bókinni áður en hún fór á listann minn en hinar greinarnar eru ekkert að svíkja.

Síðan er ég að þýða, reyndar eru það ekki nema svona níu blaðsíður.

Laugardagur, 27. desember 2003 klukkan 2:17

Biðbiðbiðbið

Ég hef ekki fengið eina einustu einkunn, ekki einu sinni úr námskeiðinu sem ég kláraði í byrjun nóvember. Kellingin sem kennir það sagði eitthvað á þá leið að þetta væri kannski leiðinlegt fyrir þá sem eru að bíða eftir námslánum en þeir væru hvorteðer flestir að bíða eftir aðferðafræðieinkunn þannig að það skipti ekki máli. Er í lagi að láta okkur vera í óvissu um þessa einkunn af því við erum í óvissu með fleiri einkunnir? Mér liði mun betur að fá að vita þetta bara núna strax. Ég er ekki sáttur við þennan kennara.

Föstudagur, 26. desember 2003 klukkan 17:28

Upprisan er staðreynd

Kaninkan dó stuttlega í nótt og reis upp aftur, ef ég hefði komið hálftíma seinna heim þá hefði ég líklega ekkert tekið eftir þessu. Þetta var hrikalegt meðan á því stóð.

Eldri færslur »