111533010713834892

Annar vinnudagur liðinn, annar gítartími einnig. Það kraftaverk gerðist að mér tókst að læra það sem sett var fyrir en í næsta verkefni á ég við ramman reip að draga. Þar sem ég efast um að nokkur af lesendum þessa bloggs muni skilja hið sjúka tæknimál yfir það sem ég þarf að læra hef ég ákveðið að sleppa því að reyna að útskýra það. Ég hef viku og ég mun þurfa hana alla.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *