Fyrirferðarspenna

Ég get ekki sofnað af eftirvæntingu svo ég sit hér við tölvuna hlustandi á snillinginn hann Nick Cave. Morgundagurinn er allur planaður. Ég mæti, innrita mig, fer í fríhöfnina, kaupi farsíma, fer á flugvallarbarinn fram að flugtíma, sest í vélina, fer á loft og fæ mér í glas á leiðinni. Ekkert þori ég að fullyrða um hvað verður gert þegar áfangastað er náð. Enda er ég eins spontant og hægt er að vera. Þó spái ég því að áfengi verði drukkið í einhverjum mæli. Mögulega miklum.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *