Kominn heim

Þá er maður kominn heim á ný og er það vel. Á Krít hef ég verið edrú, fullur og þunnur, þó mestmegnis fullur, og séð marga hluti misgóða. Einnig hef ég keypt marga hluti misgóða en það er önnur saga. Í gegnum tollinn slapp ég með flösku af glóðvolgu áfengi sem skal drukkið síðar. Mun síðar. Ekki vil ég breytast í alka. Annars hef ég orðið var við það að fólk hefur verið að reyna að smygla með sér eðlum ýmiss konar auk skotvopna og fleira ólöglegu fótaríi. Eigi veit ég nú hvernig það allt saman gekk en vona ég að sem flestir hafi sloppið í gegn. Nema kannski byssukarlarnir.
Pæling
Fyrst Mikki Mús er svona góður flugmaður hvers vegna brotlendir hann þá alltaf? Pæling þessi er aðeins ætluð fólki sem lesið hefur mörg Andrésblöð.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *