Skyndilega hellist yfir mig sú (vægast sagt einkennilega) tilfinning að ég þurfi ekki að læra neitt fyrir stærðfræðiprófið. Það, er að sjálfsögðu, argasta þvæla. Ég verð feginn þegar því prófi er lokið. Þá eru bara skemmtileg fög eftir: Íslenska, saga og þýska.
Svo fer ég aftur í latínu næsta vetur. Ég get ekki beðið!