Eldur

Eftir prófið í dag fór ég til föðurhúsa minna til að gefa fiskum þess gamla að éta. Á leiðinni til baka úr Grafarholtinu varð ég var við mikinn reykjarmökk við Ingvar Helgason. Ég dreif mig þangað hið snarasta til að sjá hinar miklu eldglæringar sem fengu sjálfan Surt til að skammast sín, en varð fyrir vonbrigðum. Var þetta þá, þegar allt kom til alls, einhver bévítans strompur.
Svona getur maður verið sjúkur stundum; verður vonsvikinn vegna skorts á eldsvoðum.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *