Líkamshreingerning (ekki ber að taka bókstaflega)

Ah! Þetta var hressandi. Hvað var svona hressandi? Jú, það var líkamshreingerningin. Skal ég nú lýsa henni í grófum smáatriðum.

1. Ég klippti neglurnar á fingrum mér og hreinsaði burt bjakkið sem þar hafði undir sest.

2. Ég klippti tuttugu metra langar inngrónu táneglurnar á mér (já, ég er ógeðslegur), og naut vel.

3. Ég rakaði mig, og þvílík himnasæla! Mér fannst ég nakinn eftir á. Nú kynnu sumir að hæðast að skeggvexti mínum. Eru þeir vinsamlegast beðnir um að sleppa því.

4. Ég fór í sturtu. Í sturtunni tók ég eftir því að ég var kominn með karlmennskubletti. Fyrir þá sem ekki vita eru karlmennskublettir mar sem myndast á innanverðu lærinu, oftast vegna óhóflegrar eistnastærðar, en þau eiga þá til að skella þar utan í þegar gengið er.

5. Ég hreinsaði úr eyrunum á mér og át. Var það mjög gott.

6. Ég hreinsaði tjöruna úr nefinu á mér. Já, það eru víst einhverjir ókostir við reykingar!

Mér finnst ég vera nýr maður, tilbúinn að sigra heiminn!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *