Hjálpi mér!

Ég var rétt í þessu að lenda á einhverjum þeim allra hressasta afgreiðslumanni sem ég hef nokkurn tíma lent á í 10-11. Maðurinn var svo hress að sveipur fór um mig þegar hann talaði. Hann fór hamförum, svo hress var hann! Ef allir afgreiðslumenn hættu að vera svona sveittir alltaf og reyndu að vera eins og þessi væri heimurinn vafalaust betri staður.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *