109740979431087513

Ekki get ég séð á myndinni, að köttur þessi hafi verið étinn. Nema einhver hafi tjaslað honum saman og þvegið eftir að hundarnir tveir skiluðu honum af sér.

Þetta er alveg magnað. Eins óhugnanlegt og það er, að heill rússneskur floti geti komist óséður að landi, hlýtur þetta að sýna fram á vanhæfni varnarliðsins. Bandaríkjunum er líka slétt sama þó rússarnir séu hérna. Það er tiltölulega auðvelt fyrir Bandaríkin að sprengja okkur af kortinu ef rússar hertaka okkur; sem þeir gera ekki. Svo verður að aðgæta að Ísland er ekki lengur þessi „skotpallur til Bandaríkjanna“ og hefur ekki verið það síðan í kalda stríðinu.

Nei, ég vil að þetta déskotans varnarlið hypji sig. Ekkert gott hlýst af veru þeirra hér.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *