109742834566113582

Ég er að spá í að útbúa viðarristu til að hengja á herbergisdyrnar mínar til að veita herberginu virðingarfullan blæ. Á ristunni gæti t.a.m. staðið: BIBLIOTHECA E ARCHIVI AQVILAMI VIDALIN STEFANOFILII (er þetta rétt skrifað?).

Einnig stendur til að gera algjöra yfirbót á herbergismálum, þá sérstaklega hvað varðar magn hluta á gólfi og fjölda bókaskápa. Já, mitt Zimmer skal vera gott Zimmer; sannkölluð Mekka bókmenntanörda.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *