109744945207745475

Fjórða valdið brauðfæðir fólkið á ótta, eins og þess er von og vísa. Á skömmum tíma hafa prentmiðlarnir hrætt fólk með sögum af rússneskum hermönnum, handrukkurum, hópamyndun unglinga, geitungum og mannýgum hundum í Seljahverfinu. Næst verða það brjálaðir pósthússtarfsmenn og útlendingar sem hafa af okkur vinnuna; hvorttveggja verandi urban legend.

Sams konar urban legend eru tíundubekkingar sem komast ekki inn í framhaldsskóla vegna langvarandi áhrifa kennaraverkfalls. Slíkir tíundubekkingar eru ekki til. Normaldreifing einkunna sér til þess.

Það er fjarlæg framtíð að hægt verði setjast niður og slappa af með Moggann. Alltént á meðan fjölmiðlar lýsa ómerkilegustu hlutum eins og einhverjum dulrænum tortímanda sem engar reiður sé á að henda; einhverjum déskotans þorpara sem drepur litla smáborgara eins og sjálfan þig vegna þess að honum finnst það svo gaman. Þú gætir verið næstur! Það getur kostað þig höfuðið að láta blekkjast af fagurri ásjónu kettlingsins og sá hlær best sem síðast hlær! Smjör drepur! Löggan er andskotinn, eða til hvers hafa þeir kylfur? TIL AÐ KLAPPA ÞÉR MEÐ?!

Ekki furða að fólk sé almennt svona taugaveiklað. Ef sett verða lög um fjölmiðla má alveg skoða þennan pakka.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *