Nokkrir hlutir sem mér finnst fáránlegir

1. Þegar ég er kallaður kommúnisti. Þeir sem það gera mega éta skít.

2. Að til sé fólk sem þarf að sofa á götum úti.

3. Þegar menn mótmæla staðreyndum í sögutímum og kalla það „vinstri slagsíðu“.

4. Að ávísanir séu enn notaðar.

5. Að svona helvítis fíflum detti svona nokkuð í hug!

6. Að samkynhneigðir njóti ekki sömu réttinda og aðrir.

7. Þegar ónefndir hægrimenn segjast vera á móti velferðarhugsjóninni en hylla Bandaríkin í hvert skipti sem þeir mæta eins og hvítir cavallieri til „hjálpar“ bágstöddum.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *