Patentlausnin er komin!

Augljóst er af þessari fyrirsögn að norðmenn séu komnir lengra upp „framfarastigann“ en áður var talið. Þeir virðast hafa fundið patentlausn á dauðanum. Ef lausnin reynist lyfleysa er hinsvegar hætt við því að „tala þeirra norðmanna sem fórust hækki aftur“.

Finnst einhverjum öðrum það annars ekki örlítið ótrúverðugt, að upphaflegan fjölda hinna meint látinna megi rekja til prentvillu?

Annars er það sorglega týpískt af fjölmiðlum vorum að flytja okkur engar fréttir af því hve margir fallinna séu innfæddir, fyrst þeir vilja á annað borð flokka fólk eftir þjóðerni (sem er í besta falli hjákátlegur og tilgangslaus þjóðernisfasismi). Mér er alveg sama þótt 3000 eða hvað það voru margir svíar hafi látist. Eina raunverulega leiðin til að meta svona er að líta á heildarmyndina.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *