Talað í myndlíkingum

Fúkkalyktin situr föst í vitum mér. Það er góð vísbending um að ég sé að sigla hraðbyri fram af hömrum líkamsheilsunnar ofan í ginnungagap rúmfestunnar. Já, hinn ægilegi sannleikur er kominn upp á yfirborðið: Arngrímur hefur gaman að hallærislegum myndlíkingum! Hann hefur dregið yður öll gegnum dal lyganna á asna svikseminnar og haft yður öll að háði og spotti. Hann, sem í hvívetna hefir neitað öllum þeim ásökunum sem á hans borð hafa bornar verið, hefir fyllt hjörtu yðvar af lævi, því hann hefir borið ljúgvitni um sitt helsta gaman og freizeitsgemacht: Að tala í myndlíkingum.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *