Hitler og Movable Type

Ef einhver var að velta því fyrir sér þá tengist síðasta færsla eldri færslu þar sem ég fann þjóðverjum til ámælis að afsaka aðgerðir Hitlers og skósveina hans. Þýskaland kom sumsé ekki inn í færsluna eins og skrattinn úr sauðaleggnum, eins og sumir félagar mínir þóttust halda fyrr í dag.

Hvað varðar athugasemdirnar þá langar mig til að geta ráðið því hvenær þær eru opnar. Sumar færslur eru einfaldlega ekki ætlaðar lesendum til diskútéringar. Er ekki eina lausnin að fá sér Movable Type?

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *