Hvernig í ósköpunum er hægt að deila við mann sem spáir 0-0 úrslitum í handboltaleik Íslands og Rússlands vegna ófyrirséðra veðurskilyrða?
Í dag hét ég þess að hætta að rífast um sálfræði við fólk. Ykkur er því óhætt að lofsyngja gildi sálgreiningar og huglægra túlkana á rannsóknarniðurstöðum í viðurvist minni.
Þessi helgi verður annars hrúguð verkefnum dauðans svo ég verð lítið á ferli. Ég gægist kannski örlítið út um turngluggann minn til að fylgjast með hvað er að gerast.