OgVodafone er ömurlegt fyrirtæki

Ég er hættur að versla við OgVodafone. Þetta er í síðasta skipti sem þeir reyna að rukka mig tvisvar fyrir sömu símreikninga. Þetta er óafsakanlegt og óþolandi. Ég gæti skilið ruglinginn ef kerfið þeirra hefði bilað, einu sinni, en ekki oftar. Hvernig veit ég nema þeir steli frá mér vísvitandi? Hversu ömurleg getur þjónusta orðið?

Ég hvet lesendur sem versla við OgVodafone til að geyma kvittanir fyrir alla greidda reikninga, í a.m.k. hálft ár eftir að þeir hafa verið greiddir, svo fyrirbyggja megi að þetta hendi þá.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *