Mér er um og ó

Ég er ekki fyrr sestur við að lesa leiðinlega bók um stjórnmálafræði fyrir próf á morgun þegar krakkinn á efri hæðinni ákveður að spila á sinn trompet. Mikið er heimsins óréttlæti. Og ekki fæ ég séð að krakkanum hafi farið neitt fram sl. þrjú ár. Verst er þó lagavalið. En þeir kenna víst hvorki Mozart né Radiohead í lúðrasveit Laugarnesskóla.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *