Mótmæli II

Mótmælin í gær voru ágæt, þó stutt væru. Eftir þau var haldið á Viktor þar sem spjallað var um utanríkis- og friðarmál. Um kvöldið kíktum við Skúli og Bjössi á Grand rokk, þrátt fyrir fögur fyrirheit mín um að gera það ekki, þar sem frekari dagskrá var í gangi. Við Bjössi fórum snemma.

Mér brá víst fyrir í öllum fréttatímum, er mér sagt. Það þýðir víst lítið annað, þegar þvílíkt myndefni er annars vegar.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *