Ef þetta er blogg, þá er þetta fyrirsögn

Mér finnst fyndið að í bönkunum sé boðið upp á einstaklingsþjónustu. Hvar er skrílsþjónustan, ætla ég að spyrja, næst þegar ég fer í banka.

Ekki skánar nú vinnuvesenið síðan í gær. Þess er krafist að ég mæti til vinnu klukkan átta í fyrramálið. Þá er eins gott að ég nái meiri svefni en í nótt.

Ég vildi að ég kynni eitthvert Asíumál, helst kínversku. Utinam að tungumálagvöðinn slægi mig leiftursnöggt í höfuðið með vendi sínum, og þá kynni ég það. Kommon, bara eitt mál og þá verð ég þægur!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *