Æfisagnaritarinn ég

Ég fletti afa mínum upp á netinu. Það eina sem um hann er skrifað er þetta:

„Eftirtaldir hafa gegnt embætti formanns frá stofnun félagsins [Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni]:

Arngrímur Bjarnason 1939
… “

Þvílík neðanmálsgrein í mannkynssögunni! Helst langar mig til að skrifa æfiágrip hans á netið. Það verður ekki ítarlegt, ef miðað er við helstu heimildir, sem eru amma mín (f. 1926) og systur hans tvær eftirlifandi (f. 1911 og 1916), vegna þess hvursu erfitt yrði að halda þeim lengi ofan í diktafóni. En þetta verð ég að gera, ég sé það nú.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *