Hvað gerðist?

Mig verkjar svo í höndina að best gæti ég trúað ég hafi kýlt af einhverjum hausinn. Það hef ég nú samt ekki gert. Orsök verkjarins er mér alveg hulin sem stendur, utan mig rámar í að hafa marist illa á höndinni fyrr í ár, jafnvel seint í fyrra, hver veit nema það hafi verið snemma í fyrra. Eða yfirhöfuð. Mér finnst ég hafa marist, tognað eða brákast, en man samt ekkert sérstaklega eftir því. Mikill er máttur minnisins.