Niður með DV

Það hlaut að koma að því að djöfulsins skálkarnir á viðbjóðslegasta miðli landsins næðu að drepa einhvern. Þeir hafa nú myrt mann sem var saklaus gagnvart lögum, mann sem var góður vinur æskufélaga míns, mann sem gat varla hafa yfirbugað nokkurn, fötlunar sinnar vegna. Það eru morðingjar á DV, morðingjar sem á að rétta yfir. Miðilinn á sömuleiðis að dæma úr leik, sekta hann og loka honum. Mér er gjörsamlega ofboðið. Aðra eins fyrirlitningu hef ég ekki fundið í háa herrans tíð, ef nokkru sinni áður. Það er komið nóg, og það er tími til kominn að gera eitthvað í málunum.

4 thoughts on “Niður með DV”

  1. Jamm, og svo má lesa áhugaverð komment Jónasar Kristjánssonar í Blaðinu í dag. Svona ef mann langar að verða enn reiðari. Þessir DV-menn eru annað hvort geðsjúklingar eða óþokkar. Hvort heldur sem er ætti að taka þá úr umferð þar sem þeir eru löngu búnir að segja sig úr lögum við mannlegt samfélag.

  2. Einnig má benda á að einhverjum þætti það e.t.v. lélegt að gagnrýna DV með samskonar málflutningi og þeir beita sjálfir. Það finnst mér ekki. Mér finnst eðlilegt að þeir dæmist líkt og þeir sjálfir hafa dæmt, helvítis nöðrurnar.

  3. Ég hef lagt mitt lóð á vogarskálarnar. Annars hef ég áður lýst afstöðu minni til þess félagslega kláms sem viðgengst hjá DV í ræðu og riti.

Lokað er á athugasemdir.