Barst sú fregn of víða ok allt þar til, er frjezt hafði í Miklagarði

Glæpamaðurinn ég gleymdi auðvitað að minnast á öllu merkari atburð en hverjir voru fullir og hvar. Þau Silja og Dóri, sem halda mætti að fundist hefðu í samheitaorðabók, eignuðust í gær sitt fyrsta barn. Séu heimildir mínar ekki rangar (mikið væri það slæmt) fæddist þeim drengur klukkan eina mínútu yfir sjö í gærkvöldi. Ég fékk tíðindin nítján mínútur og þrjátíuogtvær sekúndur yfir átta, sem er skandall, en þeim er fyrirgefið.

Innilegust fagnaðaróp héðan úr Laugarnesinu sem og von jafnframt vissu um að litli kúturinn færi þeim enn meiri hamingju en þau nú þegar njóta. Meðfylgjandi er umsóknareyðublað um að fá að koma í heimsókn og allramestastar hamingjuóskir.