Daginn eftir

Ég veit ekki alveg hvað gerðist, en mér tókst að verða alveg draugfullur í gærkvöldi, og það á vinnuhelgi. Hef sjálfsagt sagt ýmislegt misvitrænt sem hvorki ég né (vonandi) aðrir góðir menn muna núna daginn eftir. Mætti svo seint í vinnuna, í fyrsta skipti í langan tíma. En það var gaman, mikil ósköp. Mikil ósköp hve það var gaman.