„Dark Passage“ og „To Have and Have Not“

Dark Passage: Plús einn bógart fyrir óvenju frumlega en samt einfaldari nálgun á viðfangsefnið fyrri part myndar. Mínus einn bógart fyrir undarlegan flótta frá plottinu undir lokin. Plús einn bógart fyrir að hafa Lauren Bacall og Bruce Bennett. Niðurstaða, uppbygging frábær en myndin eyðilögð um og eftir hana miðja:
BogartBogartBogart

To Have and Have Not: Plús einn bógart fyrir frábært handrit. Plús annan fyrir Lauren Bacall og Peter Lorre-legan Frakka. Plús bógart fyrir tónlistina. Plús bógart fyrir persónusköpun, almenna frammistöðu og náttúrlega fyrir að innihalda Bogart. Niðurstaða, hrein og tær snilld frá upphafi til enda:
BogartBogartBogartBogartBogart