Er rosmhvalur, í tilefni af þessari frétt.
Forliðurinn rosm á sér hliðstæður bæði í nýnorsku (rossmal/rossmar) og gamalli dönsku (rosmer), og rekur ættir aftur til fornháþýska orðsins ros(a)mo, sem merkir ‘rauður eða rauðbrúnn litur’ samkvæmt Orðsifjabók Ásgeirs Blöndal, og vísar því til litar rostungsins.
Forliðurinn rost í því orði er kominn úr norsku og ber svipaða merkingu og rosm. Orðið er skylt fornháþýska orðinu rost, eða ‘ryð’, og er ekki notað lengur. Líklega þekkja lesendur best enska samsvörun orðsins, rust, sem einnig merkir ‘ryð’.
2 thoughts on “Orð dagsins”
Lokað er á athugasemdir.
Ætli það henti þá ekki nafni nessins best að skilja togarann þarna eftir til niðurryðs?
-Ryðhvalanes… Ryðrostunganes… Ryðmuuganes… Rymmunganes? o_O
Mér sýnist þú misskilja.
Rosm ≈ rost,
rosmhvalur = rostungur,
hvalur = ungur (djók).
Rost þýddi upphaflega ‘ryð’ í fornháþýsku, svo er það tekið upp sem lýsingarorð í norsku og þýddi þá einfaldlega ‘rauður’. Rust er augljóslega af sama stofni, en merking þess hefur hins vegar haldist óbreytt.