8 thoughts on “Harmonium”

  1. Þakkir! Það þarf alls ekki að pumpa svo mikið, bara rétt svo, en þá heldur reglulegar en hitt. Svo er hægt að láta það rétt anda (svona eins og afvelta Addi Kidda Gau …), með djúpum og strjálum strokum við pedalana. Yndislegasta hljóðfæri sem ég hef átt; hrútgamalt, hrukkað, ögn off-key og algjörlega dásamlegt.

  2. Ég var rosalega heppinn, ég lét vakta Góða hirðinn fyrir mig ef ske kynni að svona stykki kæmi inn, ekki að ég byggist við því. Svo gerðist undrið, og ég gekk út með það á 40.000, eftir smá prútt.

Skildu eftir svar við Arngrímur Vídalín Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *