SMS skilaboð dynja á símanum á ferð minni um Vogana, mér skilst að nærveru minnar sé tafarlaust óskað á MSN. Ég keyri upp að Sólheimasafni, opna tölvuna og nýti mér þráðlaust netsamband. Fáránlegur gjörningur, ég veit.
Í gær bauðst mér hins vegar að láta Breta á sextugsaldri „nudda“ mig fyrir 150 pund, eftir að ég sagði honum að fimmþúsundkall kæmi honum ekki einu sinni með leigubíl í námunda við vændiskonu. Hann semsé hækkaði verðið. Prostitute getur hvort tveggja verið karl eða kona, svo hann gat víst ekki vitað að ég væri að vísa honum á samkeppnisaðila.
Þetta tvennt er alls ótengt en það var punktur með þessu öllu saman. Ég er bara búinn að gleyma hvað það var.
Fortíðin var þar.
Ef æfisaga þín hefði verið kvikmynduð á níunda áratugnum þá hefði Richard E Grant verið látinn leika þig.
Ertu með nr. hjá Bretanum?
Nei …
Nú man ég hvað ég ætlaði að tengja við þetta, friðarsúluna. En ég er núna búinn að tengja hana við annað og meira. Sjá Kistuna, bráðum, vonandi.
súlur, nudd, vændi. but of course.
Friðarsúludans?